Aðdragandinn.....
Í september 1996 var síðasta Brúsastaðasystirin borin til moldar. Þá eins og við slík tækifæri lágu leiðir frændsystkina saman. Rifjað var upp að næstum 20 ár voru liðin frá því að ættarmót var haldið og kominn tími til að endurtaka leikinn. Þar sem okkar var að halda uppi merkinu var sú ákvörðun tekin að hafa þetta myndarlegt mót, sem og varð. Kallað var á liðsauka frá öllum hornum ættarinnar. Stór og sterkur kjarni myndaðist fljótt og hafa tekist góð kynni sem áður voru lítil eða engin.
Það er að segja um ættar-mótið að það heppnaðist GLÆSILEGA. Fyrir utan samkomuhúsið var stór grasflöt þar sem var tjaldað, borðað og sprellað.
Mæting var fram úr björtustu vonum og aldrei fyrr hafa jafn margir brúsar sameinast á einn blett fyrr. þarna sannaðist brúsverska máltækið ,,Við Brúsar stöndum saman og höfum gaman."
Mynd: Leikrit sem tileinkað var hjónunum og börnunum á Brúsastöðum.
Þannig hittist á að 100 ár voru frá brúðkaupi Brúsastaðahjónanna og ættarmótsins. Ákveðið var því að allur ágóði af ættarmótinu, ef einhver yrði, myndi renna til slysavarnar-félagsins Hraunprýði.
Stór hópur afkomenda mætti í kaffisam-sæti hjá slysavarnafélaginu og afhentu ágóðann með þeirri ósk um að hann yrði notaður til kaupa á skáp undir fána sem Friðrikka, dóttir þeirra Brúsastaðahjóna, hafði saumað fyrir félagið. Það var gert og er fáninn kominn í skáp hjá slysavarnarfélaginu ásamt gestabók sem var á ættarmótinu.
Til eru vísur um fjölskylduna á Brúsarstöðum.
Ungur maður meyjarblómann ærði
mikið gat það stundum verið snúið
En Ingveldi hann Eyfi glaður færði
alskapaða drengi og lagði í búið.
Eyjólfur hinn ágæti
Ingu sinni góður var
Hún Kristin fékk í kaupbæti
og karlinn litla hann Valdimar.
(Formáli eftir Brúsa 1997)
Á brúsastöðum býr óbreyttur bóndason
býst ég við að hann heiti Þórður Veldingsson
Búa fleiri bænum á, ég bæti við
Böggu, Sigurði-Stjána, Ingólfi,
Stínu, Theu, Fanney Lilju og Hjálmari.
En eftir er að telja
hann pabba og ekki mömmu síst
þau heita Inga og Eyfi
allra bestu hjúin - og er ég svo búinn.
(Þórður Eyjólfsson líklega 1914-16)
Viðbætir eftir Brúsa 90 árum síðar
Ekki er þó sagan öll
enn bárust börnin
til Brúsastaðahjóna.
Seinna fæddist Ingólfur
og yngismærin Jóna
Yfir 300 manns mættu á mótið, frá öllum hlutum landsins. Sá árangur hlýtur að teljast frábær þar sem niðjar þeirra hjóna voru þá rúmlega 400.
Eins og sést á myndunum lék veðrið við mótsgesti og skein sólinn alla daganna sem Brúsar voru þar.
Endilega skoðið fleiri myndir af ættarmótinu hér fyrir neðan.
Ákveðið var að halda ættarmótið aðra viku í ágúst árið 1997 að Heimalandi undir Eyjafjöllum.
Þetta er mótsnefndin hér til hliðar. Elsa, Kristín, Ninna, Ransí og Unnur. Við vorum með fundi reglulega og alltaf kom eitthvað nýtt upp sem við þurftum að glíma við, þ.e.a.s hugmyndir á borð við leikrit og alls konar aðrar sniðugar uppákomur.
Við vorum svo lánsamar að Ninna á hauga af alla vega búningum og voru þeir skoðaðir heima hjá henni og voru óþrjótandi hugmyndir á lofti um hvað gera átti með þá.