Vestast í vesturbænum í úfnu Hafnarfjarðarhrauninu stóðu gömlu Brúsastaðir, áður nefnt Hvammsvík, nálægt sjó umvafðir klettum og hólum með djúpum gjótum á milli. Nú er hins vegar búið að rífa gömlu Brúsastaði og byggja nýtt hús sama reit.
Í samþykkt bæjarins segir að þetta svæði sé friðað og ekki megi reisa þar nýjar byggingar eða raska svo að umtalsverðar breytingar verði á staðháttum. Okkur er tjáð að áður fyrr hafi mikill fjöldi fugla af þeirri tegund sem nefnist Brúsi verið þar, en til þeirra teljast Hrimbrimi og Lómur. Þaðan mun bæjarnafnið Brúsastaðir komið.
Margir Brúsar hafa vaðið í villu og svíma og kennt sig við mjólkurbrúsa en hafa nú viðurkennt þessar nýju staðreyndir hér að ofan.
Smellið á myndina til að sjá þetta nánar
Inn á milli klettadranga í hraungjótum munu litlu kotin hafa staðið í all sérstæðu samfélagi nokkuð útaf fyrir sig, en þó í þægilegri nálægð bæjarins. Umhverfið var ævintýraheimur, ekki síst fyrir börnin. Efni fólksins voru ekki mikil. Sumir bændur áttu bát og drógu björg í bú, þeir höfðu sínar kindur og hænsni, og einstaka maður átti kú, eða hest, og við flest kotin voru kálgarðar. Að mestu snérist lífið um það, að hafa í sig og á, það var ekki beðið um meira enda voru sum heimilin barnmörg.
Byggðin á Brúsastöðum var ekki gömul um aldamót, en þar hefur nú verið búið óslitið í heila öld. Í nær heilan mannsaldur hefur lítil sem engin breyting orðið á þessu svæði og gefur það góða mynd af því hvernig var umhorfs víða í Hafnarfirði um aldamótin síðustu.


Ef þið eigið betri mynd þá vitið þið hvað á að gera
Fjarlægðin gerir fjöllinn blá og Brúsana mikla