Ingveldur kona Eyjólfs var dóttir Jóns Þorleifssonar f. 1824 d. 1890 bónda í Hvammi í Kjós og Eyjum í Kjós. Faðir Jóns var Þorleifur Guðmundsson á Nesjavöllum ættföður Nesjavallarættarinnar Brandsonar, Eysteinssonar.
Móðir Jóns var Guðný Bjarnardóttir Guðmundssonar bónda í Norðurkoti í Gríms-nesi og kona hans Kristín Sigurðardóttir.
Móðir Ingveldar var Salvör Sigurðardóttir f. 1833 í Selkoti Þingvallasveit d. 1914. Hún var dóttir Sigurðar Þorkelssonar, bónda í Selkoti Loftssonar, Þorvaldssonar á Heiðarbæ Eiríkssonar Loftssonar. Móðir Salvarar var Ingveldur Einarsdóttir frá Stýflisdal Jónssonar og Birgittu Þorvarðardóttur. Kona Þorkels Loftsonar var Salvör Ögmundsdóttir f. 1772. Hún var dóttir Ögmundar Jónssonar .
Brúsastaðasysturnar. Mynd tekin í kringum Gullbrúðkaup Eyjólfs og Ingveldar, ca 1947
Efri röð fr.v, Theódóra, Lilja, Kristín. Neðri röð: Fanney, Jóna Salvör, Friðrikka Guðbjörg
Brúsastaðasystur, systra- og bræðradætur. Mynd tekin um 1966.
Efsta röð fr.v: Kalla, Erla, Inga Dóra, Elsa, Inga Böggu, Villa, Kiddí, Sjöfn, Magga, Sigrún
Miðju röð: Ninna, Rúna, Stína, Dúddí, Gréta, Sæunn, Ransí, Fanna, Unnur
Neðsta röð: Lilja, Kristín, Jóna, Bagga (Friðrikka), Fanney og Lóa (gift Þórði)